Aðalbros sameinar nýjustu tækni og hlýlegt andrúmsloft til að tryggja þægilega og faglega tannlæknaþjónustu fyrir alla skjólstæðinga.
Hjá okkur á tannlæknastofunni Aðalbros starfa reyndir tannlæknar á öllum sviðum ásamt tannsmiðum sem sjá um alhliða tannsmíðaþjónustu.
Aðalbros er stærsta tannlæknastofa Reykjanesbæjar sem býr yfir 30 ára reynslu.
Nútímabúnaður
Bestu mögulegu tæki sem völ er á
Samvinna við sérfræðinga
Á öllum sviðum tannlækninga
Faglegt teymi
Reyndir tannlæknar, tannsmiðir og aðstoðarfólk
Fjartannlækningar
Við bjóðum uppá þjónustu á
elliheimilum og spítölum
Þjónusta Aðalbros
Við bjóðum upp á allar almennar tannlækningar fyrir börn og fullorðna með fagmennsku og umhyggju að leiðarljósi.
Reglulegt eftirlit
Regluleg skoðun og ráðgjöf er nauðsynleg til að viðhalda góðri tannheilsu og koma í veg fyrir óþarfa vandamál.
Með góðu handbragði og bestu fáanlegu aðferðum og efnum viðhöldum við góðri tannheilsu, þarfnist tennur viðgerða.
Til að viðhalda biti, tyggingu og útliti smíðum við krónur, brýr og önnur tanngervi í nánu samstarfi við tannsmiði sem við treystum og höfum átt gott samstarf við.
Tannplantar
Endursköpum tannmissi með tannplöntum, þar sem þörf er á, í nánu samstafi við sérfræðing á stofunni.
Tannréttingarskinnur
Glærar skinnur eru lítt áberandi lausn til að rétta tennur og bæta bæði útlit og bit þar sem við á.
Tannhvíttun
Örugg og árangursrík aðferð með viðurkenndum efnum til að hvítta tennur og bæta útlit og bros.

Um okkur
Fagfólk Aðalbros sameinar sérfræðiþekkingu og persónulega þjónustu til að tryggja þér örugga og þægilega tannlæknisþjónustu.